23.8.2008 | 22:49
Allir í mat
Þetta er búinn að vera æðislegur dagur, bara hreint út sagt frábær. Eldri drengurinn er búinn að vera hér í allan dag, var bara í sims í tölvunni með krökkunum, horfa á sjónvarpið og hafa það næs bara.
Ég ákvað að skella gaddfreðnu læri í ofninn klukkan hálf þrjú og bauð báðum strákunum í mat fyrst þeir voru báðir hér suðurfrá.
Lærið tókst fullkomlega, var geðveikt gott, og allir hámuðu í sig læri með rjómasósu og jummíi.
Það var æðislegt að hafa þá báða í mat og enginn að flýta sér neitt eða fara neitt.
Naut semsagt dagsins í dag í botn. Það var æði og vona að ég eigi eftir að eiga marga svona daga.
Kv. Stinafínalokkalína
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Frábært hvað þið hafið haft það gott!! Við hefðum alveg verið til í læribita Enda ekkert étið hér í gær. hjéhjé biðjum að heilsa Grindóliðið
Telma (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 18:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.